
Fóstbræðrasalurinn
Sögufrægur, bjartur og vel búinn salur fyrir tónleika, ráðstefnur, námskeið, ættarmót og veislur. Salurinn hentar allt frá notalegum samkomum til stærri viðburða. Salurinn er á 2. hæð og er lyfta í húsinu.
Helstu upplýsingar
Salurinn rúmar 140 gesti í sæti og 170 gesti í standandi boð.
Leiguverð salarins er 150.000 kr. Staðfestingargjald er 50.000 kr. og endanlegt uppgjör er innan viku frá viðburði.
Leigutími er frá klukkan 9:00* til 01:00. Viðburði þarf að ljúka fyrir klukkan 01:00 en þá getur frágangur leigutaka hafist. Aðgengi að sal degi fyrr fer eftir bókunarstöðu hverju sinni.
*í sumum tilfellum leigist salurinn frá kl. 14:00
Skoða lausar dagsetningar
Útleiga: salurinn@fostbraedur.is
Hvað er innifalið í leigunni
Innifalið í leigunni er allur borðbúnaður, eldhúsaðstaða með gastro ofni, uppþvottavél, kælar, frystir, klakavél og kaffikanna. Skjávarpi, hljóðkerfi, hljóðnemar, svið og flygill er til staðar.
Þrif eru innifalin í leigu en leigutaki sér um frágang.
Leigutaka er velkomið að koma með eigin veitingar og drykki ásamt aðstoðarfólki. Leigusali getur haft milligöngu um aðstoð í sal ef þess er óskað.
Hægt er að panta dúka sem passa á 6 manna borð og er verð per dúk 1.050 kr.
Fóstbræðrasalurinn - Myndir
Hafa samband
Fóstbræður: fostbraedur@fostbraedur.is
Útfarasöngur: utfor@fostbraedur.is
Útleiga: salurinn@fostbraedur.is
Karlakórinn Fóstbræður, Langholtsvegi 109, 104 Reykjavík
Kt. 560169-0869 Banki. 0526-26-000968